Ég veit ekki alveg hvert ég á að senda þessa grein og það er varla að þetta kallist grein. :) Málið er það að maður sér hérna Ofurhuga og það eru þeir sem eru með flest stig. Nú hefur maður heyrt að það hafi verið mun auðveldara að fá stig hér í gamla daga en það er núna. Þannig að mér datt nú barasta í hug hvort ekki hægt væri að gera svona Ofurhugar mánaðarins þar sem að kæmi í ljós hver er að standa sig best í núverandi kerfinu??? Allavegna eitthvað fyrir þá sem ekki eiga fræðilegan möguleika á að ná þessum sem voru hér þegar stígin óxu á trjánum…
Joi Guðni