http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1201665

Maðurinn var fundinn sekur um að hafa káfað á einni stúlkunni, sem þá var 9 ára, á tjaldsvæði á Þingvöllum og látið hana snerta sig. Þá var hann fundinn sekur um að hafa látið fimm ára gamla stúlku snerta sig á heimili sínu og rassskellt hana. Þá var hann sakfelldur fyrir að káfa á 12 ára gamalli stúlku, sem hann var að gæta á heimili sínu.

Í fórum mannsins fundust í tölvu 228 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Sextán ljósmyndanna hafði maðurinn tekið sjálfur áheimili sínu, þar af fjórtán myndir af 5 ára stúlkunni og tvær myndir af þeirri fjórðu sem var 7 ára þegar myndirnar voru teknar. Ein ljósmynd fannst af fimmtu stúlkunni, sem var um það bil sex ára þegar myndin var tekin en sú mynd hafði verið skeytt saman við aðra mynd.

Maðurinn fékk fyrir allt þetta tvö ár og háar fjársektir. Er það bara ég eða er full ástæða til að loka svona menn inni mun lengur? Veit þessi brot eru ekki þau alvarlegustu, en þetta endurtók hann fimm sinnum, og með allt niðrí sex ára stelpum. Auk alls barnaklámsins sem fannst hjá honum.
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?