Já, ég held að það sé eitthvað samsæri í gangi hérna.

Okei, þetta byrjaði í raun þannig að zophonias kom og var með einhverja stæla sem ég sá reyndar ekki en hef séð síðan slatta eftir hann síðan. Hann er með einhverja tvo user accounta sem eru báðir zophonias(einhverjar tölur fyrir aftan.) Síðan kom pongolle eitthvað með einn kork eða eitthvað og er með mjög vafasama undirskrift: ‘Ég er zophonias?’

Okei. Síðan kom Jaget eitthvað að pirra alla á bardagalistaráhugamálinu. Pirraði síðan alla á forsíðunni, vældi meira, hætti, byrjaði aftur einum degi síðar og heldur áfram að vera með leiðindi. Pongolle hefur síðan komið öflugur inn með helling af einhverri steypu.

Síðan kom í gær þarna mundsson með einhverja 10 korka eða eitthvað sem var reyndar eytt útaf strax. Síðan var einhver Jurtur að stygahórast eins og hann kallaði það.

Ég held að þetta sé samsæri og er ég nokkuð hræddur á vissan hátt. Ég meina bara að hugi er að breytast í eitthvað yfirnáttúrulegt sem er creepy.

Góða nótt og ég mun fylgjast meira með þessu máli.