Það hlaut að koma að því sem ég hef kviðið lengi, seinasti þáttur Cheers var að klárast á skjáeinum núna rétt í þessu. Stór hluti af lífi mínu er núna farinn, finnst eins og ég hafi misst góðan vin. Ég man hversu mikið mér leiddist þetta í byrjun en svo seinna hefur þetta verið ómissandi og hefur reyndað kostað miklar vökur oft á tíðum enda þættirnir sýndir svo seint á kvöldin.

Ég er ekki fullviss um að þetta hafi verið seinasti þátturinn, en það leit út fyrir það því miður…