ég var að skoða síðuna hjá Plús ferðum. Þar sá ég þetta í dálknum “gott að vita”, ég var að skoða Spán.

Akstur

Vegna mismunandi þarfa viðskiptavina okkar er akstur að og frá flugvelli erlendis valkvædd þjónusta fyrir þá sem það kjósa. Ath: að bóka og greiða þarf aksturinn fyrir brottför frá Íslandi.
Súrefni

Auka súrefni í flugvélinni kostar 6.000 kr. hvora leið. Bóka þarf súrefnið hjá sölumanni á skrifstofu fyrir brottför.
Gjaldmiðill

Evra. Hér má finna gengi Evrunnar.

Er þetta eðlilegt að hægt sé að panta súrefni????