Vá hvað það er búið að vera mikið um að það sé fólk eitthvað að slasast og týnast uppá jöklum.

Spáir fólk ekkert í því hvað kostar að leita af svona fólki? Þyrlur og hundruði manns.
Þó flestir séu að gera þetta í sjálfboðavinnu.

Ekki æða bara uppá jökul án þess að vita um ástand hans!
Ekki fara uppá jökul illa undirbúin.

Hef aldrei farið uppá jökul af neinu viti en ég hef samt vit á því að ég myndi ekki fara illa undibúinn uppá jökul né að fara uppá jökul sem er ekki í því ástandi að það ættu menn að fara á hann.

Ekki gera ráð fyrir því að ef þú týnist bara að þá kemur einhver að redda þér. Það er nefnilega ekki sjálfsagt að hundruð manns fari að leita af einhverjum sem hefur ekki hundsvit hvað hann sé að gera … bara að fara þarna í einhverju flippi eða whatever eða hann sé að leika sér að gera einhverja vitleysu.

Ekki sé minnst á alla peningana sem eru að fara í þetta bull.

Ég er alls ekki á móti því að fólk sé að fara uppá jökul. Bara, farið vel undirbúin!