Ég er að verða fokking pirraður! Það er búið að standa yfir í nokkrar vikur að ég get ekki svarað korkum. Alltaf þegar ég ýti á “gefa álit á korki” þá fer bara síðan allveg upp (eins og ég sé nýbúinn að smella á greinina). Ég hef prófað að ýta á “svara” en það gerist allveg það sama.
Ég er búinn að senda vefsjóranum 3 eða 4 mail og spurt þá hvort þeir geti lagað þetta en þeir svara mér aldrei!
Ég var að pæla hvort það sé lausn að vefstjóri eyði mér af huga og ég nýskrái mig?
Mér er drullu sama um stigin (það er ekki eins og ég fái ps2 ef ég fæ 1000 stig) þannig ef það er einhver sem getur eytt nafninu mínu af huga, endilega gera það strax því ég er háður huga.

kv. ég