Jæja, eftir að hafa kannað þetta mál er ég nokkuð viss um að Oasis sé ekki að koma til landsins.

Það fyrsta sem ég gerði var að hringja í www.midi.is og spyrja hvort þetta væri satt. Konan í símanum vissi það ekki og sagði mér að hringja aftur seinna þegar hún væri komin með meiri upplýsingar um málið. Það gerði ég og mér var sagt að þetta væri bara orðrómur og að þau vissu ekkert um hverjir spiluðu á tónleikunum, þau seldu einungis miða á þá.

Þar sem þetta er orðrómur, og hefur bara komið fram í DV(og alveg eftir þeim að tala um að þetta sé í alvöru þó svo að þetta sé orðrómur) er ég nokkuð viss um að þetta sé ekki satt. Ég vinn í sama húsi og DV svo ég er að spá í að kíkja þangað yfir og spyrjast fyrir og kannski meiða einhvern líka.

En eftir allt þetta grams þá er ég ekki að nenna þessu lengur, svo að ef einhver annars Oasis aðdáandi væri til í hringja jafnvel í flugleiðir eða komast að einhverju haldbæru um þetta þá væri það fínt, og svo skrifa um það hérna.