Vá… ég sem hélt að íslenski Bachelor þátturinn væri botninn á soranum en nú hef ég komist að raun um að svo sé ekki.

Sigurvegari ömurlegasta þáttar heims er án efa Bikini Módel 2006.

Það er allt við hann ömurlegt, fyrir utan nokkrar gellurnar.. álíka mikið skemmtanagildi í þessu og þessum erlendu sjónvarpsmörkuðum sem auglýsa eitthvað erobik tæki. Þeir hafa allavega gellurnar líka.

Íslendingar…. hættið með þessa raunveruleikaþætti!!
Þjóðarstolt mitt er að verða að engu.

Hvað næst, Íslenskur Rockstar með Ásgeiri Kolbeins ?