Hér sit ég fyrir framan tölvuandskotann og rífst og skammast í henni. Ég þoli ekki þessa tölvu, hún frýs reglulega, kemur svona *beeeeeeeeep* og svo kemur allt aftur…þetta er víst vírusvörnin að skanna….jæja, það er þó betra en að þetta sé vírus. En svona í alvöru…ég þoli ekki þegar talvan frýs(samt eru þetta bara nokkrar sekóndur í einu)*byrjar að rífa í hárið á sér og stappa niður fótunum* alltí lagi…slaka á…slaka á…þetta er bara svo óendanlega pirrandi!! *hleypur niður í eldhús og nær í rjómatertu* múhahahahaha! Nú skal ég ko hefna mín! *hendir kökunni í skjáinn…* ohh crap….nú sé ég ekkert….og nú hata ég þessa tölvu ennþá meira….