Hver er tilgangurinn með því að fólk sé sífellt að reyna að benda fólki á hjálparkorkinn?

Ég er búinn að pæla í þessu nokkuð lengi og ég sé bara enga ástæðu fyrir því nema til að vera með óþarfa leiðindi.

Sífellt nöldur og tuð skilar örsjaldnast árangri hér á Huga, (edit takki, segja fólki að nota hjálparkorkinn)

Svör við korkum sem hefðu hugsanlega átt að fara á hjálparkorkinn innihalda bara “hjálparkorkur” eru yfirleitt fleiri en raunveruleg svör við þessum tiltekna korki. Ef fólk segist vera að þessu til að bæta Huga á einhvern hátt þá sjá þau ekki skóginn fyrir trjánum.

Hvernig væri nú að passa aðeins upp á blóðþrýstinginn og láta svona illa staðsetta korka framhjá sér fara?