Ég spurði spurningar hér rétt áðan og það eina sem komið er er ábending Doherty á hjálparkorkinn..

Þá datt mér í hug að fara að skoða þá ( hef aldrei litið á þá (hjálparkorkana) en samt skoða eg Almennt á hverjum degi.) og skoða 10 síðustu hjálparkorka. 6 af 10 hefur ekki verið svarað og 2 hefur 1 - 2 svarað og 1-2 þá hafa einu sem hafa svarað farið að tala bara saman með því að svara hvor öðrum á korknum.

Mér finnst það ætti bara að hafa einn kork á Forsíðu og hafa 4 liti eða Staf fyrir hvernig korkur þetta er. Sem dæmi: Rauður eða N fyrir Nöldur, H eða blár fyrir Hjálp o.s.f.