jæja þannig standa málin að ég á einn vin sem heldur þvi fram að allir hati sig, en það er ekki satt! Hann er búinn að tala um það svo lítið lengi um að kála sjálfum sér, en ég er búin að tala hann af því oft og mörgu sinnum. ég spurði hann áðann hvort að hann vissi um einhvern sem hataði hann en hann svaraði mér ekki en sagði svo : æiji ég er bara farinn í WoW!
þannig að hann veit ekki hvort að einhver hati hann. hann blockaði vin sinn eða núna fyrverandi vin sinn. æi ég bara veit ekki hvað ég á að gera í þessu máli..auðvitað vil ég ekki að hann drepi sig og ég hata hann ekki eða neitt..þetta er yndislegur drengur og getur verið skemmtilegur ef hann vill…æji öll ráð væru vel þegin =)

með fyrir fram þökk =) Birna