ég verð að segja … allar þessar styttingar og þetta slangur hérna á netinu og á msn er að eyðileggja fyrir manni stafsetninguna!

sjálfur er ég þó nokkuð á msn og á netinu og það hefur bitnað frekar á stafsetningunni minni :)
ég var búinn að vera allt sumarið eitthvað á msn og svona og svo kemur skólinn og þá þarf maður bara að læra íslensku uppá nýtt…

þá kom að því að við fórum í stafsetningarpróf … ég fék mínus 5.5, -5.5

hvað finnst ykkur um hvert þetta er að leiða …

við erum að sjálfsögðu arftakar samfélagssins og ég veit ekki hvernig það væri þegar allir eru farnir að tala/skrifa svona !

endilega tjáið ykkur … :