Í dag hugsaði ég með mér að nú væri komið að því að ég myndi apa eftir alveg slatta af fólki og fá mér MySpace.com síðu. Ok, ekkert mál. Ég fór á myspace.com og opnaði svona síðu og fínerí. En svo þegar ég ætla að breyta útlitinu á henni (búinn að finna flott CSS fyrir myspace-ið) þá finn ég hvergi hvert ég á að fara á stjórnunarsíðunni minni til að breyta útlitinu á síðunni. Þannig að núna spyr ég hvernig ég geti breytt útlitinu á MySpace síðunni minni?