Þessir drengir munu koma með hljómsveitarútu í bæinn á fimmtudaginn. Komutími er kl. 19:00 og að sjálfsögðu er BSÍ áfangastaðurinn. Þar verður svo blaðamannafundur í beinu framhaldi þar sem fjölmiðlamönnum gefst kostur á að kynnast þessari hljómsveit betur. Söngvari Drifskafts þykir ansi hreint ódæll svo búast má við fjörlegum fundi auk þess sem fjölmargir aðdáendur hljómsveitarinnar munu eflaust setja sinn svip á viðburðinn.

Lagið “Seventeen Years in the Shadows” með Drifskafti hefur nú hljómað á öldum ljósvakans í viku og rýkur upp vinsældalistana.

Drifskaft leikur á tónleikum á NASA n.k. laugardagskvöld (18. mars)… forsala miða fimmtudag og föstudag á milli 13:00 og 16:00.