Það fer svo mikið í pirrurnar á mér þegar fólk segir að hlutir fari í taugarnar á sér.

Svo hata ég þegar fólk pirrar sig á hlutum eins og tónlist.

Ég hata þegar fólk alhæfir.

Ég hata þegar fólk segist hata hluti því fólk hatar þá aldrei í raun og veru.

Ég þoli ekki þegar það er hálka úti og maður dettur.

Ég hata þegar gosið mitt verður goslaust.

Ég pirra mig alveg hreint rosalega á því þegar fólk sem mér finnst að eigi að heita “Guðmundur” heitir “Stefán”.

En aftur á móti þá elska ég Coca-Cola, eins mikið og það kemur málinu við.