Ég er algjörlega kominn með nóg af þessum pizzastað!

Fyrir alls ekki svo löngu pantaði ég pizzu þarna og þegar ég var kominn á sirka 5 sneið þá læddist þetta
10 cm hár út úr miðri pizzunni og þegar ég ætlaði að draga það úr þá var það fast!
Ok, ég fór og sýndi þessum sauðum þetta og fékk nýja pizzu. Rétt að koma því fram að þessir guttar þarna nota ekki HÁRNET við pizzugerðina sem loðir við að vera sorglegt! Eitt hárnet á hvern koll? Lítið sem ekkert mál.

Nú í kvöld pantaði ég pizzu þaðan, og þetta var pottþétt í síðasta skipti. Allavega, pizzan var hálfbökuð og mest allt kjötið á henni var einnig hrátt(skinka,beikon,nautahakk og pepperoni.) Deigið var grautlint allstaðar og endarnir voru ekki einu sinni stökkir! Nautahakkið var sumstaðar
hvítt, veit ekki hvort það var hrátt eða bara eldgamalt, smakkaðist allavega hálf skríngilega.

Ég einfaldlega nennti ekki að fara og skila pizzunni til að fá aðra nákvæmlega eins… og er hér með hættur að versla við þennan stað að eilífu!