Ég er ekkert lítið pirraður..

Búið að standa á www.bio.is síðunni núna lengi að First Descent muni verða frumsýnd 10.03.06 og núna í dag (akkúrat á frumsýningardag) ákváðu þeir að breyta því yfir í 14.04.06

Afhverju í fjandanum fresta þeir myndinni enn lengur. Hún er komin út á DVD í Bandaríkjunum en samt geta þeir ekki séð sér fært að sýna hana hérna á Íslandi.

Mig var búið að hlakka geðveikt til að sjá þessa mynd en núna mun ég líklega aldrei sjá hana í bíó. Kaupi hana örugglega frá bandaríkjunum eða eitthvað.