Hvað er búið að heilaþvo þessa konu lengi? Maður fokkin deyr ekki þó að maður borði 3 fransbrauðsneiðar á dag!!!!!!! Þú lifir ekki fullkomnu lífi þótt þú troðir sólblómafræjum upp í rassgatið á þér. 1 gramm af sykri verður ekki til þess að þú fáir hettusótt og ælir í kjöltuna á þér…. Fokk ég þoli ekki svona lið.

Svo er þátturinn hörmung “borðaðu 600 g af ávöxtum á dag! annars deyrðu! því ef þú borðar Mars þá sest alllur sykurinn í Marsinu í æðarnar í þér og sprengir þær og þú ferð á spítala og síðan deyrðu”

Vá, ég er svo böggaður eitthvað út í þessa konu. Það er allt í lagi að stuðla að heilbrigðu líferni en þetta fer bara yfir öll velsæmismörk… þetta er oooof mikið af hinu góða.
Drasl…