Jesús kristur maður!

Eru allir á milli gelgju og þrítugs með Puma Jamaica???

Það er svo mikið af þessu drasli til, og síðan er ilmvatn allt í einu orðið tískufyrirbæri?

Hvað varð líka um nota eitthvað sem að manni fynnst ilma vel sjálfur? …Einhverjar nokkrar hnakkamellur skrifa kannski á bloggsíðurnar sínar að þeim finnist Puma Jamæka sexy og það breyðist og allir gaurarnir hlaða sig upp af þessu í von um að verða allt í einu eitthvað afskaplega ómótstæðilegir?

Það sem að ég held, þar sem að 80% gaura nota þetta að þegar að stelpa finnur fnykinn af þessu í fimmhundruðasta skiptið sé hún komin með það alveg uppí kok af viðbjóði. Mér fannst þessi angi nú ekkert hræðilegur, en vá hvað ég er orðinn fljótur að finna bragðið af ælunni þegar að ég finn þetta núna.