Ég vildi bara lýsa yfir óánægju minni með þessar auglýsingar. Ekki það að framtakið sé ekki gott, þvert á móti er ég afar ánægður með það. Hitt þykir mér hinsvegar verra að hugsa til þeirra vandræða sem grey krakkarnir sem “leika” í auglýsingunum eiga í vændum. Getið þið ímyndað ykkur alla stríðnina sem þau eiga eftir að lenda í út af þessu?
HAHA, þarna er stelpan sem vil lekki að neinn sé góður við pjölluna á sér o.s.frv. Hver myndi vilja eiga þetta yfir höfði sér langt fram á unglingsár?
Mér finnst það grimmilegt að láta nokkuð barn leika í svona auglýsingu, því að ég held að það eigi eftir að gjalda þess það sem eftir er.

Endilega halda þessu átaki gangandi, en vinsamlegast skiptið um auglýsingar áður en meiri skaði er skeður.

Takk fyrir.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.