Jæja núna hefur bandaríska álfélagið Alcoa ákveðið að hefja ítarlega könnun á hagkvæmni þess að reisa nýtt, 250.000 tonna álver á Bakka við Húsavík. Ég er ánægður með að störfum fjölgi hérna fyrir norðan, þetta á eftir að vera sem adrenalín sprauta í bæjarfélögin Akureyri og Húsavík og bara allt í kring. Verði af byggingu þess mun álverið nota rafmagn sem að mestu verður framleitt með jarðvarmaorku svo það verða engin uppistöðulón en það er einmitt það sem fólk er alltaf að mótmæla.
Mér finnst hinsvegar stjórnvöld fara auðveldustu leiðina, afhverju reyna þau ekki að finna eitthvað annað en álver, afhverju eru stjórnvöld ekki að lokka önnur stórfyrirtæki til landsins til að gera atvinnulífið aðeins fjölbreyttara. Samt ef það er ekkert annað en álver í boði þá er það alltí lagi því það er betra en ekkert. Ef það kæmi heinsvegar eitthvað annað vildi ég frekar fá það en eitthvað álver. Hvað er ykkar álit á þessu?
Það er enginn tilgangur með undirskrift!!!