Flatbökusendill rændur í Grafarvogi :

Flatbökusendill var rændur í Grafarvogshverfi í Reykjavík um klukkan ellefu í gærkvöldi. Maður með kylfu reidda til höggs ógnaði sendlinum, tók af honum eina flatböku, veski með tvö þúsund krónum og bíllyklana. Maðurinn tók síðan til fótanna og hvarf með góssið. Lögreglan var kölluð til en ræninginn er enn ófundinn.

hahahahehehe snillingur er þessi maður gat hann ekki rænt banka eða eithvað sem maður græðir eithvað á en ekki pizzu og 2000 krónum