Já ég segi fólk sem að drullar á fólk því að fólk sem að ber enga virðingu fyrir öðru fólki og rakkar það niður á Huga gæti alveg eins bara skitið duglega á það en þetta kemur útaf þessu að einhver byrjaði á því einhverntíman áðan að rakka niður Gillz, einhver líkti honum síðan við Silvíu Nótt sem að er btw. tilbúinn persóna. Ég persónulega fíla bæði Gillz og Silvíu Nótt.

En ég er samt ekki bara að tala um frægt fólk í þjóðfélaginu. Eins og til dæmis Skuggi85. Ég var mjög oft á tíðum algjörlega á móti sumum hans skoðunum og aleit hann þröngsýnann og svo framvegis. Ég hins vegar hafði það sem að marga vantar og það er það að ég bar samt virðingu fyrir honum. Ég meina að hann er nú mannseskja eins og við öll. Þannig að ég sleppti því frekar að senda honum haturspósta og eyddi tíma mínum í annað og mikilvægara.

Ég reyndar er sammála Skugga85 í einu máli og það er það síðasta sem að hann talaði um áður en hann hætti og það er það að Hugi er að fara til fjandans. Það er nú samt hægt að bjarga honum. Hvernig veit ég ekki en ég hins vegar mæli með því að fólk sé ekki að drulla á annað fólk af ástæðulausu. Þótt að einhver segi: ,,Ég fíla ekki metal´´ þá þýðir það ekki að hann hati alla sem að hlusta á metal og hati áhugamálið.

Peace og von um breyttann og vonandi betri Huga í frmatíðinni…..