Er einhver leið til að losna við öll þessi fjandans duplicate lög í iTunes ?

Var að eyða öllu útaf iTunes og setja nýja tónlist inn því annar harði diskurinn minn með helmingnum af lögunum er dauður. Svo hendi hendi ég þessum 28.4 GB af tónlist sem ég á inná iTunes, og þetta skemmtilega forrit vill endilega búa til helst ekki minna en 7 auka eintök af laginu ! Þannig að þessi 28 GB eru alltíeinu orðin einhver 80 GB í iTunes.

Ekki benda mér á winamp því ég hef notað hann og líkar hann ekki.