Johnny National - Silvía Nótt.
Ég veit ekki hver aldur ykkar er sem les þetta. En þekkiði ekki Johnny National?
Ég man eftir Johnny National þegar Skjár einn var soldið nýr. Johnny National var leikinn af Erp Eyvindarson. Hann var svona gaur með stæla og rugl í fólki sem hann tók viðtal við. Bullaði í fólki og var alltaf að syngja“Rappa” í þáttunum.
Ég ætla spurja, Þið sem þekkið til Johnny National og Silvíu Nótt. Fynst ykkur, Ekki Silvía Nótt bara vera Johnny National númer 2 ? Eða kvenkyns Johnny National?
Mér persónulega fynst Silvía Nótt vera algjört “Copy/past” af Johnny National. Þetta er nákvæmlega sama útgáfa nema stelpa. Og önnur tíska. Ég er ekkert á móti Silvíu og fíla hana í botn. Hlakkaði alltaf til að horfa á næsta þátt hennar. En ég vill bara spyrja ykkur hvað fynst ykkur um Johnny National og Silvíu Nótt?