Ég er komin með ógeðslegt ógeð á þessu drasli!!! Ég er oft að reyna finna myndir sem ég hef áhuga á að eignast… en eitthvað er það greinilega ógerlegt!! Búin að leita af myndinni Tommy Boy á dvd… það gengur eins vel og finna nál í heystakk!! en góðu fréttirnar eru þær að ég lét panta hana fyrir mig, þannig ég fæ hana von bráðar.. Svo ætlaði ég að kaupa mér Citizen Cane eeeeeen neeiiiiii hvergi til… 101 reykjavík, neeeeiiii hvernig datt mér það í hug… búin að leita eins og meiníak af Kingdom Hospital, ég náði seinasta eintakinu í 2001 (lucky for a change)
Ég leitaði í svona ár af Jumangji og fann hana að lokum, leið og ég keypti hana VAR HÚN TIL ÚTUM ALLT!
Ég var svo pirruð á þessu í gær og ég hellti mér yfir sára saklausan starfsmann…

Er ég að vilja einhverjar myndir sem er ógerlegt að fá eða er ég einstaklega óheppin?
Ofurhugi og ofurmamma