Já það er rétt! Ég er rafmögnuð! Ég er svo rafmögnuð að ég má ekki snerta einn einasta hlut án þess að fá straum!
Þegar ég opna hurðina mína - straumur, opna gluggann - straumur. Bara nefndu það! Hárið á mér er svo rafmagnað þegar ég vakna á morgnana að það lyftist ef ég set höndina fyrir ofan hausinn á mér!!!

Er ekkert sem er hægt að gera svo þetta hætti?!?!?!