Þið bara fyrirgefið þó maður sé gamall & vitlaus, en maður heyrir nánast aldrei aðila úr þessum þjóðfélagshópi nefnda í eintölu. Það er bara talað um “hnakkamellur” eða að mönnum sé “breytt í hnakka”, eða “hnakka-lífsstíl” …hnakka-þetta & hnakka-hitt.


Þannig að ég spyr: Hvort er þessi Gillzenegger “hnakki” eða “hnakkur”, og hvaðan í ósköpunum kom þessi furðulega nafngift um þá sem aðhyllast þennan lífsstíl?
_______________________