Mig langaði að benda á að í dag (klukkan 5) hefst Íslandsmeistaramót með frjálsri aðferð í samkvæmisdönsum í Laugardalshöll. Aðgangseyrir er 1200 krónur, en sá peningur er fyllilega þess virði að borga fyrir að fá að fylgjast með þessu Íslandsmóti.

Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með dansi eða dansað sjálfir er þetta fyrst og fremst þvílík sýning, betra en leikhús. Og fyir þá sem hafa eitthvað fylgst með dansi og/eða dansað sjálfir er þetta tækifæri til að sjá rjómann af íslensku danslífi.

Staðsetning: Laugardalshöll
Tímasetning: 17:00
Aðgangseyrir: 1200 krónur

Fenrir Greyback