Ég hata reykingar!

Mín rök eru:

# ógeðsleg fýla
# þetta er stórhættulegt, eyðileggur lungun o.f.l.
# það er grautfúlt að vera kannski á tónleikum og það má reykja þar og þá er maður að drepast úr fýlu og óbeinum reykingum
# ég er enn það ungur að ég er ekki farinn að fara á skemmtistaði og þvíumlíkt, en ef það verður svona þvílík fýla og allir að reykja, ekki mun ég fara þangað!!!
# Sígarettur eru eitur
# Maður verður háður þeim og fæstir geta hætt…
# Sígarettur eru dýrar
# Ef fólk fær ekki sígó þá verður það uppstökkt og viðskotaillt!!!

HÉR MEÐ LÝSI ÉG ÞVÍ YFIR AÐ ÉG ER ALFARIÐ Á MÓTI ÞEIM SEM ERU SVO VITLAUSIR AÐ BYRJA EFTIR ALLA FRÆÐSLUNA SEM FLEST FÓLK UNDIR TVÍTUGU HAFA FENGIÐ.