Í frímínútum áðan datt ég í tröppum og hornið á tröppunni fór beint inní sinina (eða hvað sem það er þar sem læknarnir berja og þá kippist fóturinn til) og bekkjasystir mín fór bara að hljæja…! Svo var skólasund og við áttum að synda stanslaust í 10 mín. og það gildir til einkunna. svo versnaði þetta endalaust þangað til ég gat ekki hreyft fótinn en ég reyndi samt að labba eðlilega og hélt sársaukaöskrunum inní mér í nokkra klukkutíma svo var skólinn búinn og ég gat þetta varla lengur og var næstum komin með tár í augun af sársauka en ég ætlaði að halda þetta út svo labbaði ég framhjá stelpunni sem hafði hlegið þegar ég datt og hún spurði af hverju ég labbaði svona asnalega og ég sagðist vera að drepast í hægri fætinum þá sgaði hún: “Þú ert bara aumingi, ég er að drepast í báðum!”( hún er með hælsæri )
Ég hata fólk sem segir að maður sé aumingi en veit ekkert (EKKERT!!!) hvernig manni líður!!!
Það er tillitsleysi!!!