Ég er með herbergi með glugga (no shit) og glugginn snýr að svæði þar sem er ekki mikið gengið um, fluffinn er svona fyrir ofan þakið á bílskúrunum hérna. Ég er í blokk. Og klukkan er núna 1 að kvöldi/nóttu og það er kall að moka fyrir utan!

Nei, hann er ekki að moka snjó, þar sem að það er ekki snjór hérna. Hann er að moka möl!

Wtf is going on?

Svo er hann með kött eða eitthvað annað mjálmandi dýr með sér sem vælir og vælir og vælir and on and on and on…

Áðan dró ég aðeins frá gluggatjöldunum til að gá hvað væri eiginlega í gangi þarna, þá sá ég bara einhvern kolanámukall eða eitthvað vera að moka möl… þú veist, það er ekki einu sinni mikil möl hérna! Bara eitthvað pínku ponsu einsog er allsstaðar…

Úff…annars vil ég benda Sjálfstæðismönnum á þessa síðu –> www.XD.is - Gúdsjitt hér á ferð (:S)