Sæl.

Mig langar að athuga hvort til sé áhugi fyrir að hafa tribute Smashing Pumpkins tónleika þar sem ýmsar hljómsveitir myndu taka lög með þeim. Led Zeppelin covertónleikarnir í Borgarleikhúsinu tókust vel og ég veit að mikið er um Pumpkins aðdáendur hér, svo ég sé ekkert þessu til fyrirstöðu.

Ég er til í að taka að mér skipulagningu þessa tónleika ef til er nógur áhugi.

Endilega segið hvað ykkur finnst um þessa hugmynd.

Takk.