Canaon og Sony er það sem ég mæli með enda eru þær með bestu linsunum. Ef þú spyrð mann sem veit mikið um þetta þá mælir hann hiklaust með Canon og Sony.
Sony, canon og panasonic eru eiginlega einu merkin.
Panasonic Gs vélarnar eru mjög góðar, og á frábæru verði.
En ef þú ættlar að panta þér vameru af netinu vertu þá viss um að hún er NVgs-(númer) því ef að hún er Pv_gs-(númer) þá er hún ntsc og getur því aðeins notað það myndefni á amerískum sjónvörpum. Nv_gs-(númer) þýðir pal NV og þá geturu notað hana í flest öllum sjónvörpum í heiminum það er bara ameríka og nokkur önnur lönd sem að eru PV-ntsc
Ef þú ætlar að fá eitthvað sem endist færðu þér nikon
Með nikon þá verslarðu þér body og sæmilegar linsur sem endast þér svo næstu 50 árin þarsem að nikon hafa ekki skipt um festingar fyrir linsur í sambærilegan tíma á meðan canon hefur farið í gegnum á annan tug festinga
Ég keypti mér rosalega flotta Sony myndavél í Sony Center í Kringlunni um síðustu helgi. Hún kostaði á milli 16 og 17 þúsund á útsölu (áður 35). Ég mæli með því að þú skoðir allavega þar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..