Ég beinlínis þoli ekki lið sem heimtar hundrup milljóna til að gera 4 ´sjónvarpsþætti.

Framleiðandi: Jæja Jennifer, viltu gera 4 Friends-þætti í viðbót?
Jennifer Aniston: Nei
Framleiðandi: æ kommon, ók en fyrir 100 milljónir?
Jennifer: Nei
Fr: plííís ok 200?
J: Nei
Fr: ók loka boð 300 milljónir!!!!!
J: Allt í lagi þá.

Hvað er að þessu liði? Getur það ekki drattast til að gera smá “sjalboðaliðastarf” án þess að heimta hundruð milljóna fyrir? 300 milljónir fyrir… oooohhh ég á ekki orð.

Frægt var nú þegar Ray Romano þurfti að fá ég man ekki hvað… 1 milljón dala per þátt! til að halda áfram með Everybody Loves Raymond. Knattspyrnumenn vilja ekki sjá samning nema það sé 6 tölur í laun á viku, þetta er svo ömurlegt lið. Vill fokkin gaurinn spila fótbolta? Getur hann ekki spilað fyrir 100 kall á viku? Nei, þeir þurfa allavega 5 milljónir á viku þá erum við að tala saman.

Er þetta bara ég eða er græðgin í þessu liði ólýsanleg?
Drasl…