Ég er veik, með hálsbólgu og kvef. Ég hata kvef. Ég gat ekki einu sinni sofið í morgun því það var alltaf eitthvað að leka úr nefinu á mér og það var ekker í sjónvarpinu, nema þessi hörmulega spænska sápuópera. Við erum að tala um að hún er verri en Glæastar Vonir.

Og núna er ég í svitabaði vegna hitans, með hor lekandi úr nefinu á mér og áðan hóstaði ég þar til ég ældi.

Að sleppa við skólann út af þessu er svo innilega ekki þess virði.