Eftirfarandi er sameiginleg yfirlýsing tuttugu kristinna trúarfélaga og 19 einstaklinga. Tekið af mbl.is

Við undirrituð lýsum eindregnum stuðningi við biskup Íslands, þegar hann segir að hjónaband sé sáttmáli milli eins karls og einnar konu, og teljum að nú beri að standa vörð um hina upprunalegu fjölskyldumynd og velferð fjölskyldna og barna í íslensku samfélagi. Um leið hörmum við það fráhvarf frá kristnum siðferðisgildum sem ríkistjórn Íslands sýnir með frumvarpi til laga um réttarstöðu samkynhneigðra. Frá því að þjóðin gerðist kristin, hefur hún haft fyrrnefnd siðferðisgildi sem grundvallarviðmiðun í löggjöf landsins. Að lögleiða aðra skipan er fráhvarf frá skíru og kláru boði Heilagrar ritningar og í andstöðu við siðfræði kristinnar kirkju í heild sinni.

Með tilvísun til þeirra greina frumvarpsins sem fjalla um ættleiðingar barna til para í staðfestri samvist og tæknifrjóvgun hjá konum í staðfestri samvist, þá teljum við í ljósi kristinnar grundvallarafstöðu okkar hvort tveggja vera fráleitt. Við teljum að réttur barna sé skertur með nefndu frumvarpi og samband barns við föður og móður ekki virt. Við minnum á að samkvæmt upphafsgrein Barnalaganna, nr. 76/2003, á barn rétt á að þekkja báða foreldra sína.

Breytingartillögu við frumvarpið, sem felur í sér heimild forstöðumanna trúfélaga til hjúskaparvígslu tveggja einstaklinga af sama kyni, teljum við fráleita og höfnum henni alfarið. Rök okkar eru þau sömu og áður: Hin boðaða löggjöf fer þvert gegn kristinni kenningu um hjónabandið og samband foreldra og barns.

Þau trúfélög og trúarhópar sem standa að þessu (og gera það í heild) eru:

Hvítasunnukirkjan Fíladelfía, Reykjavík,
Hvítasunnukirkjan í Keflavík,
Hvítasunnukirkjan á Akureyri,
Hvítasunnukirkjan Betel, Vestmannaeyjum,
Hvítasunnukirkjan Salem, Ísafirði,
Hvítasunnukirkjan Selfossi,
Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti,
Íslenska Kristskirkjan, Grafarvogi,
Fríkirkjan Kefas,
Krossinn í Kópavogi,
Fríkirkjan Vegurinn,
Betanía, kristið samfélag,
Hjálpræðisherinn á Íslandi,
Sjónarhæðarsöfnuður, Akureyri,
Akurinn, kristið samfélag, Kópavogi,
Samfélag trúaðra, Reykjavík,
Samfélagið Hörgshlíð 12,
Vinyard, kristið samfélag, Reykjavík,
Aðventkirkjan á Íslandi,
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan: Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins í Reykjavík (Ísland prestur Timur Zolotuskiy)

Og þar að auki einstaklingar í (öðrum) trúfélögum:
Anton Ingimarsson, verslunarstjóri.
Dr. Arngrímur Jónsson, fyrrv. sóknarprestur
Eva S. Einarsdóttir, ljósmóðir í Kópavogi
Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri
Guðlaugur L. Aðalsteinsson, og k.h. Kolbrún B. Jónsdóttir
Guðmundur Óli Ólafsson, fyrrv. prófastur í Skálholti
Guðmundur Pálsson, sérfræðingur í heimilislækningum
Gústaf Níelsson, sagnfræðingur í Reykjavík og k.h. Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, forstjóri
Halldór S. Gröndal, fyrrv. sóknarprestur
Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar
Jón Oddgeir Guðmundsson, Akureyri
Jón Valur Jensson, guðfræðingur í Reykjavík
Jón Rafn Jóhannsson OCDS (Karmelítareglunni, kaþ. kirkjunni)
Laufey Jensdóttir, húsmóðir
Lilja Kristjánsdóttir húsmóðir, fyrrv. kennari
Dr. Loftur R. Gissurarson, gæðastjóri OR, Mosfellsbæ
Patrick Breen, sóknarprestur kaþólskra á Akureyri


Ok…burt séð frá hinni endalausu umræðu sem snýst um rétt trúarfélaga til að hleypa þeim sem þeim líkar við inn í sitt samfélag og hvort að biblían sé í raun á móti samkynhneigðum eða ekki þá getur maður ekki annað en spurt sig hvar þetta pakk er vitsmunalega séð. Sér þetta fólk ekki mannfyrirlitninguna og ég leyfi mér að segja rasisma gegn samkynhneigðum með orðum sínum og gjörðum. Þetta fólk á alvarlega bágt.
Will there ever be a boy born who can swim faster than a shark?