Þetta var nú bara rugl leikur. Svo er mál með vexti að MK fengu 2 rétt í hraðaspurningum sem þeir áttu ekki að fá. Ekki nóg með það þá var ein spurning sem var spurt um fisk, man ekki hvernig hún hljóðaði en þá svöruðu MK silungur; Kynnir segjir Rangt. MÍ svara “Bleikja”, MK segja það þá líka og fá rétt fyrir það. Það er náttúrulega stranglega bannað og stendur í reglunum og er bara fáranlegt að þeir höfðu fengið það rétt. Ekki nóg með það, hefðum við (MÍ) fengið það rétt hefðum við komist í eitt af stigahæstu tapliðunum og komist í pottinn um að halda áfram. Svo er strákur eins og Gulli sem er á 4ári búinn að reyna svo mörgu sinnum og þetta var síðasta tækifæri hans til að komast áfram. En nei þá fær hann bara svona lélegan leik og fellur út.
En svo var “staðan” 21-16 fyrir þeim. Hefðum við fengið bleikjuna og þeir ekki fengið þessi 2 stig í hraðó þá væri staðan alla vega ; 18-17.

Ég er mjög ósáttur og pirraður. Takk fyrir mig :)