Ég vil hvetja fólk til að minnast þeirra 14 sem létust í snjóflóðinu í Súðavík á þessum degi fyrir 11 árum. Af þessum 14 sem létu lífið voru 8 börn.

Ég kom á slysstað nokkrum dögum eftir slysið, og var aðkoman langt frá því að vera fögur. Heilu húsin voru horfin og á sumum stöðum stóðu einungis einn og einn veggur þar sem áður höfðu verið íbúðarhús.