Hafiði lennt í því, að eiga hinn fínasta vin og hann verður fáranlega mikið uppáþrengjandi?

Ég á fínasta vin, skemmtilegur og fínn. Fyrsta vikan sem ég þekkti hann hafði ég meira að segja áhuga fyrir þessum dreng, en gerði ekkert því ég er í föstu sambandi. Svo varð hann svo UPPÁÞRENGJANDI! Þegar hann talar langar mig helst að troða einhverju uppí hann, eða óska þess að mute takki væri á honum. Svo hringjir hann endalaust, vill alltaf hitta mig og þegar ég get það ekki… Þá heldur hann áfram að nöldra um það að hitta mig, þetta er eins og pirrandi lítil smá stelpa og það eina sem maður óskar eftir er smá friður! Byrjar alltaf að trufla mig þegar ég vil FRIÐ.

Pínku pons pirruð, en svona er bara sumt fólk :)