Núna er ég sko frekar pirruð. Þannig er mál með vexti að ég fékk í jólagjöf þáttaseríu sem er ekki til á landinu (svo ég viti) og var pöntuð frá Amazon. Svo á aðfangadag ætla ég mér nú aldeilis að fara að horfa á þessa þætti sem ég hafði ekki séð í mörg ár og fer að opna þetta og sé þá mér til mikillar skelfingar að það vantar einn disk í þetta bara sísvona!
Ég náttúrulega varð frekar brjáluð en það bjargaðist þar sem við sendum póst á Amazon og vorum beðin að endursenda hitt og við fengjum nýtt í staðinn.
Svo núna á föstudaginn kemur loksins pakkinn og ég opna fyrst hulstrið sem vantaði diskinn í, og hann var á sínum stað. Svo opna ég hin hulstrin, og neinei, VANTAR ÞÁ EKKI DISK AFTUR! Bara í þetta skiptið annan disk!
Ég er svo svekkt að það er ekki normal og ég bara varð að deila þessu með e-rjum! arrg!