Sko, ég var að borða popp úr popppoka (hehe 3 p í röð) og held á honum og síðan rennur hann allt í einu úr höndinni á mér eins og… tja, blautt sápustykki.

Ég missi þá popppokann á gólfið, en ég var heppinn því að það sullaðist ekkert mikið popp úr pokanum, en allavega og þar sem að ég var með fætur uppá stól við hliðina á mér, þurfti ég að drattast með þá niður af stólnum og snúa mér til að geta náð í pokann aftur.

Nú, ég geri það bara eins og mönnum sæmir… vil ekki hafa popppoka á gólfinu hjá mér, fátt meira hallærislegt. (Munið að þegar hér er komið við sögu var eiginlega ekkert popp farið úr pokanum.) Jæja, ég fer með lappirnar niður og sný mér um leið í stólnum. Þetta voru miklar ryskingar og endaði þetta þannig að ég steig ofaná pokann og mikið sullaðist út fyrir.

Fólk er farið að halda núna að einn maður bara getur ekki verið svona óheppinn, en neeeei, ekki nóg með allt þetta, heldur kemur hinn fóturinn askvaðandi og lendir í hliðinni á pokanum með þeim afleiðingum að hann snýr sér í hring með þeim afleiðingum að ALLT poppið fór úr pokanum.

En jæja, svona er lífið :(