Ok, DV er slæmt blað og allt það, ég veit.
En í sambandi við gaurinn, hvað var langt síðan þessi mynd var birt þangað til hann drap sig?
Ég efast um að maðurinn hafi drepið sig án þess að reyna að sanna mál sitt ef hann hefur verið saklaus.

Okey, ég skil það ef einhver hefði sett mynd af honum og allir á landinu hefðu hatað hann og hann hefði ekki getað farið út í búð án þess að eitthvað gerðist við hann… En varð hann fyrir einhverju miklu aðkasti?
Ég meina, ef þetta gerðist við mig þá mundi ég amk. reyna að sanna mál mitt fyrst og berjast kanski aðeins fyrir þessu (en það er kanski ekki hægt að segja hvernig maður mundi bregðast við).

Bara pæling.