ÞArsem ég er að fara að búa einn þá hef ég 2 spurningar sem ég vonast til að fá svar við.

Húsaleigubætur
Hvar sæki ég um Húsaleigubætur? og Hversu miklar bætur fæ ég ef ég er að borga ca 50þús á mánuði?

Internettenging
Þarsem ég er ða fara að flytja þá þarf ég að fá mér nýja tengingu. Þarf ég að fá mér nýtt númer ef ég ætla að fá mér tengingu? ÞEAS, þarf ég að fá mér minn eiginn “heimasíma”?
Og annað, hjá hvaða fyrirtæki ætti ég að fá mér tengingu? Ég hef verið hjá Símanum síðan þeir fóru að gefa kost á ADSL og hef mjög sjaldann orðið var við vesen.
Er HIVE málið? Ódýrar tengingar með meiri hraða og endalausu magni utanlands - EN, ég hef heyrt að það sé alltaf eitthvað vesen með tenginguna, lélegt samband við útlönd og þessháttar.
Endilega - þið sem eruð hjá HIVE segjið mér hvort ég ætti að fá mér tenginu hjá HIVE eður ey.

Takk fyrir, vonast til að fá svör.