Í gær voru nokkrir krakkar að keyra um og henda froskum og þannig sprengjum í fólk. Mig langaði bara að segja að mér finnst þetta svo fáránlegt! Datt þeim ekki í hug að þau gætu hitt í augað á einhverjum og eyðilagt það? Hvernig dettur krökkum þetta í hug? Það voru líka um daginn einhverjir að reyna að sprengja upp hús á leikvelli stutt frá þar sem ég bý, engin smá sprenging! Svo var kveikt í ruslagámi á móti húsinu mínu. Þetta voru mest krakkar á aldrinum 15-17 held ég. Ætlar fólk ekki að þroskast og skilja að það er í alvörunni fólk sem hefur slasast alvarlega í svona.