Guð hvað eitt fer í taugarnar á mér. Ég var að rölta úti í nótt og þetta hreint út sagt stakk mig í augun. Fólk sem sprengir tertur, oft fleiri en eina, úti á miðri götu og skilur þær eftir þarna. Fullorðið fólk (ég geri ráð fyrir því að 15000 króna tertur séu ekki á vegum krakka hverfisins) á ekki að vera svona tregt.