Þannig er það nú að Áramótaskaup Sjónvarpsins 2005 verður sýnt eftir hvað, 2 daga? Svo pabbi var að pæla, hvort það væri nokkurs staðar hægt að kaupa það á DvD eftir áramót, í staðinn fyrir að taka það upp, því það væri bara óþarfa tilstand.

Veit e-r hérna e-ð um þetta, verður hægt að kaupa það? Ef það verður ekki hægt að kaupa það, og e-r sem vinnur Þarna uppi á Sjónvarpi les þetta, endilega komdu þeirri hugmynd að fólkinu sem sér um þetta að selja eftir áramót, örugglega þónokkrir sem vilja kaupa þetta.
Meina, væri ekki flott að eiga safn af áramótaskaupum vel geymda á Dvd? Mig langar í þannig…

(Gleðileg áramót)