…væri fólk eflaust ekki að halda jól um þessar mundir. Það væri kjánalegt.

En burtséð frá því; Getur einhver sagt mér hvaða lag er undir nýju auglýsingunum frá 365 fjölmiðlum? Þessi auglýsing er þannig að áhorfandi ferðast í gegnum teiknaða veröld sem inniheldur hitt og þetta frá fjölmiðlarisanum. Hún er dálítið löng.
Undir hljómar feykigott lag sem mig fýsir að vita hvað heitir en hef engar forsendur til að geta leitað uppi með leitarvélum.

Það er því mitt síðasta úrræði að spyrja ykkur.